0	Norræna samstarfið er eitt umfangsmesta svæðissamstarf í heimi.
1	Samstarfið byggist á legu landanna, sameiginlegri sögu þeirra og menningu.
2	Að samstarfinu koma Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð auk Álandseyja, Færeyja og Grænlands.
3	Norræna samstarfið er pólitískt, efnahagslegt og menningarlegt og lætur muna um sig í evrópsku og alþjóðlegu samstarfi.
4	Löndin stuðla sameiginlega að öflugum Norðurlöndum í öflugri Evrópu.
5	Með norrænu samstarfi er hagsmuna svæðisins gætt og norræn gildi efld í hnattrænu samhengi.
6	Sameiginleg gildi landanna styrkja stöðu Norðurlanda og skipa þeim meðal þeirra svæða í heiminum þar sem nýsköpun og samkeppnishæfni er mest.
7	Reglulegt þing er haldið a.m.k. einu sinni á ári.
8	Þingið ákveður stað og stund fyrir næsta þing.
9	Forsætisnefnd er heimilt að breyta þeirri ákvörðun ef sérstakar aðstæður koma upp.
10	Önnur þing eða þemaþing kemur saman ef forsætisnefnd ákveður slíkt‚
11	eða ef a.m.k. tvær ríkisstjórnir eða tuttugu og fimm fulltrúar óska eftir því.
12	Forsætisnefnd ákveður þá stað og stund.
13	Þingið fer með æðsta ákvörðunarvald ráðsins.
14	Í Helsingforssamningnum er kveðið á um skipan þingsins‚
15	og ennfremur að þingið geti samþykkt tilmæli, tekið aðrar ákvarðanir og gefið álit‚ sem beint er til ríkisstjórna‚ einnar eða fleiri‚ eða til ráðherranefndarinnar.
16	Forsætisnefnd fer með æðsta ákvörðunarvald ráðsins á milli þingfunda og hefur þá sömu heimildir og þingið hefur ella.
17	Nefndin stjórnar starfsemi ráðsins og sér um að samræma hana starfi þjóðþinga og alþjóðastofnana.
18	Starf ráðsins fer fram í fjórum nefndum:
19	Norrænu þekkingar- og menningarnefndinni, norrænu sjálfbærninefndinni, norrænu hagvaxtar- og þróunarnefndinni og norrænu velferðarnefndinni.
20	Nefndirnar undirbúa mál hver á sínu sviði áður en þau eru tekin til lokaafgreiðslu á þingi.
21	Eftirlitsnefnd fer með þingbundið eftirlit með þeirri starfsemi sem kostuð er sameiginlega úr norrænum sjóðum‚ og sér einnig um aðrar úttektir sem þingið ákveður.
22	Kjörnefnd undirbýr og leggur fram tillögur að kjöri sem fer fram á þinginu.
23	Helsingforssamningurinn kveður á um hvaða landsdeildir starfi og skipan þeirra.
