0	Árið 1950 voru jarðarbúar 2,5 milljarður. 
1	Árið 2050 verða þeir orðnir tíu milljarðar. 
2	Fjórfjöldun íbúa á einni öld. 
3	Sameinuðu þjóðirnar hafa löngum haldið því fram að þetta gangi ekki nema við undirbúum okkur. 
4	Þess vegna var Alþjóðlega nefndin um umhverfismál og þróun (WCED), oft nefnd Brundtlandnefndin, sett á laggirnar árið 1983. 
5	Í lokaskýrslu nefndarinnar, Sameiginleg framtíð okkar, er sýnt fram á samhengi umhverfis, atvinnulífs og samfélagsþróunar. 
6	Við eigum að fullnægja þörfum samtíðarinnar án þess að skerða möguleika komandi kynslóða til að fullnægja sínum þörfum.
7	Þrjátíu og tveimur árum síðar, á árinu 2015, samþykkti Allsherjarþing SÞ sautján heimsmarkmið um sjálfbæra þróun og síðar sama ár náðist Parísarsamkomulagið í loftslagsmálum. 
8	Við eigum að reyna að halda hlýnun innan við 1,5 hitastig, öll lönd eiga að uppfæra markmið sín á fimm ára fresti og öflugu skýrslugerðarkerfi verður komið á laggirnar. 
9	Allt er þetta mikilvægt ef við eigum að ná langtímamarkmiðum um loftslagshlutleysi á seinni hluta þessarar aldar.
10	Þekking og samningar eru fyrir hendi. 
11	Nú gefst Norðurlöndum tækifæri til að sýna að einnig sé vilji til að verða leiðandi í þeim umskiptum 
12	sem eru óumflýjanleg ef við ætlum að tryggja viðunandi lífsskilyrði fyrir tíu milljarða jarðarbúa árið 2050. 
13	Norræna ráðherranefndin fól mér að fara um öll Norðurlönd ásamt Satu Reijonen aðalráðgjafa. 
14	Við gengum 170 kílómetra og hjóluðum 70 kílómetra milli 119 funda. 
15	Við ræddum við vísindamenn, forystufólk í atvinnulífinu, stjórnmálafólk og fulltrúa umhverfishreyfinga, sveitarfélaga og góðgerðarsamtaka svo eitthvað sé nefnt. 
16	Á öllum fundum ræddum við um hvort Norðurlönd hafi getu og vilja til að ryðja brautina í þeim umskiptum sem heimurinn verður að fara í gegnum. 
17	Það höfum við. 
18	Og hverju er þá verið að bíða eftir? 