0	Ef þeim líkar ekki völlurinn verður keppnin færð á Ísafjörð.
1	Það má nú ekki gerast.
2	Nei... það má ekki gerast.
3	-Ísfirðingar eru sko hálfvitar.
4	Þeir eru kannski ekki hálfvitar,
5	en geta verið ansi erfiðir...
6	þegar þeir koma hingað á mót.
7	-Erfiðir?
8	Þettu eru skíthælar.
9	Þrándur hefur staðið sig í stykkinu við að innræta þeim sitt skítlega eðli.
10	Þrándur?
11	-Það er fáviti.
12	Formaður golfklúbbsins á Ísafirði.
13	-Eða skósveinn satans eins og hann heitir í símaskránni.
14	En hvað um það.
15	Eftir tvær vikur þarf allt að vera tipp topp,
16	er það skilið?
17	Hvenær fórst þú að fylgjast með fótbolta?
18	Hvernig á ég þá að komast inn á Ísafjörð?
19	Þetta er fyrsti vinnudagurinn,
20	ég þekki þá ekkert.
21	Jú,
22	ég get alveg spurt hann.
23	Já.
24	Bæ.
25	Finni.
26	-Já.
27	Geturðu skutlað mér á Ísafjörð?
28	-Nei,
29	það er yfirvinna í sundlauginni.
30	Ætlar Rakel ekki að sækja þig?
31	-Hún er að horfa á fótboltaleik.
32	Vinnur þú í sundlauginni líka?
33	-Ekki launað,
34	vinna í taninu.
35	Er Rakel að skoða Spánverjann í markinu?
36	Ég veit það ekki.
37	Getur þú ekki reddað mér?
38	Nei, sorrí.
39	Sólin dofnar svo fljótt seinni partinn.
40	Þú verður bara að húkka þér inn eftir.
41	...hættulegt að veðja á kennitölur.
42	-Ég er bara ósammála.
43	Bíddu,
44	hvað er Rakel að gera hér?
45	Ætli hún vilji ekki Tommapylsu í hádegismat.
46	Góða skemmtun!
47	Hæ,
48	hvað segir þú?
49	-Fínt.
50	Hvað ertu að gera hér?
51	-Viltu koma með mér í hádeginu?
52	Já,
53	við erum akkúrat að fara í mat.
54	Tommi.
55	-Já.
56	Ég er búin að vera að hugsa um sambandið okkar.
57	Já.
58	-Hérna...
59	Ég er að spá hvort við eigum ekki að taka pásu.
60	Ha?
61	Pásu?
62	Bíddu,
63	hefur ekki allt verið í góðu?
64	Jú,
65	það hefur bara margt breyst.
66	Bíddu,
67	hvað hefur breyst?
68	Varst þú ekki að draga mig vestur?
69	Jú...
70	Mér þykir ótrúlega vænt um þig og við náum ótrúlega vel saman.
71	En...
72	Ég er bara ekki nógu ástfangin af þér.
73	Ertu ekki að grínast?
74	Og hvað?
75	Erum við þá að fara að búa saman en ekki vera saman?
76	Helst ekki.
77	Það er laust herbergi hjá Lindu og Halla hérna út í Vík.
78	Lindu og Halla?
79	Ertu bara að henda mér út núna?
80	Ég er ekki að fara að búa hjá systur mömmu þinnar.
81	Þú getur tjekkað á Kidda og Finna líka.
82	Ég þekki þá ekkert.
83	Kiddi er stórfurðulegur og Finni...
84	það er allavega eitthvað að honum.
85	Já, hann er spes en hann er hress.
86	Hvað á ég þá að gera við allt draslið mitt?
87	Ég er með það í skottinu,
88	þú getur tekið það núna ef þú vilt.
89	Þegar sviðasultan er komin á þá kemur aðal hnossgætið.
90	Þetta kenndi Bjarni frændi mér.
91	Hvað var að honum?
92	En bara flokkstjóri í bæjarvinnunni eða eitthvað?
93	Ekkert laust?
94	Geturðu þá hringt ef eitthvað losnar?
95	Bara tölvupóst?
96	Já...
97	Okei.
98	Bless.
99	Er hrífan með eitthvað vesen?
100	Drullaðu þér í burtu!
101	Ég er kominn með nóg af þér letinginn þinn!
102	Gerir aldrei neitt hérna,
103	lætur mig gera allt!
104	Kiddi...
105	Sorrí með mig áðan.
106	Ég bara missti mig alveg.
107	Blessaður vertu, hafðu engar áhyggjur.
108	Hvað segirðu...
109	langar þig að tala um hvað gerðist?
110	Já...
111	Rakel var að hætta með mér.
112	Sagðist vilja taka pásu.
113	Ég veit alveg hvað það þýðir.
114	Slut.
115	Viltu bagg?
116	Nei, ég er hættur.
117	Og hvað?
118	Sagði hún eitthvað af hverju?
119	Nei, hún sagðist bara ekki vera viss með þetta.
120	Ekki viss?
121	Var hún ekki að draga þig vestur?
122	Jú, nákvæmlega.
123	Hvað er að henni?
124	Hvað ætlarðu þá að gera?
125	Fara bara beint aftur suður?
126	Ég get það ekkert.
127	Ég var að tala við Vinnumálastofnun,
128	það er ekkert laust svona seint.
129	Ekki einu sinni í bæjarvinnunni.
130	Hvað ætlarðu þá að gera?
131	Bara vera hér?
132	Ég verð að gera það.
133	Ég bara trúi ekki að ég sé fastur á Bolungarvík.
134	Í Bolungarvík!
135	Þú býrð ekki á Reykjavík.
136	Hvar ætlar þú að gista?
137	-Ég veit það ekki.
138	Rakel var búin að redda eitthverju hjá Lindu systur mömmu hennar...
139	það er ekki séns að ég gisti þar.
140	Það kemur ekki til greina.
141	Gæti ég fengið gistingu hjá ykkur?
142	Þar til ég fæ vinnu fyrir sunnan.
143	Góðan daginn.
144	-Góðan daginn.
145	Fórstu ekki í sturtu drengur?
146	-Nei Tómas... ég baða mig ekki nakinn með öðrum nöktum karlmönnum.
147	Gasalega verður þetta nú huggulegt.
148	Það verður bara gaman hjá okkur í sumar.
149	-Já, er það ekki?
150	Ekkert vera að hlusta á mömmu ef hún er með vesen.
151	Ef þú vilt elda egg og beikon á morgnana eftir fyllerí...
152	þá bara gerir þú það.
153	-Já, okei.
154	Takk samt fyrir að redda mér.
155	-Já minnsta málið.
156	Ekkert pæla í Rakel.
157	Hún er vön að slíta hjartað úr góðum drengjum.
158	Þú ert ekki sá fyrsti karlinn minn.
159	-Nú?
160	Nei, hún er eins og minnkurinn,
161	veiðir sér bara til skemmtunnar.
162	Miskunnarlaus skepna.
163	Jájá...
164	Hún var alltaf góð við mig.
165	Minnkur er krúttlegur, en þú vilt ekki að hann sleppi inn í hænsnakofa.
166	Hvað ertu að bulla?
167	Þetta meikar ekkert sens.
168	Þú munt ná þessu einn daginn.
169	Nú er tíminn til að rífa sig úr skítnum,
170	fá sér gott tan og fara á gott fyllerí í kvöld.
171	Já er það ekki bara?
172	-Jú.
173	Ég myndi líka kaupa mér nýjan bíl.
174	Það læknar öll sár.
175	-Jájá...
176	Ég er að spá í að selja minn.
177	-Á ég að kaupa hann?
178	Þú ferð ekki að kaupa japanska sardínudós.
179	Frekar amerískan dreka eða eitthvað þannig.
