0	Arven er dauðvona.
1	Hún lifir ekki lengi illskuna sem breiðist nú út frá Mordor.
2	Ljós Aftanstjörnunnar dvín.
3	Eftir því sem Sauron styrkist fer þrek hennar þverrandi.
4	Líf Arvenar er nú bundið örlögum Hringsins.
5	Skugginn vofir yfir okkur, Aragorn.
6	Endalokin nálgast.
7	Það eru ekki endalok okkar heldur hans.
8	Þú ríður til stríðs en ekki sigurs.
9	Herir Saurons sækja að Mínas Tíríð, þú veist það.
10	En á laun sendir hann annan flokk sem gerir árás frá Fljótinu.
11	Floti ræningjanna frá Umbrum siglir úr suðri.
12	Þeir koma til borgarinnar eftir tvo daga.
13	Þú ert ofurliði borinn, Aragorn.
14	Þú þarft fleiri menn.
15	Það eru engir.
16	Það eru þeir sem dvelja í fjallinu.
17	Morðingjar.
18	Svikarar.
19	Viltu að ég kalli þá til orrustu?
20	Þeir trúa á ekkert.
21	Þeir svara engum.
22	Þeir munu svara konungi Gondor.
23	Andúríll, Logi Vestursins, smíðaður úr brotum Narsíls.
24	Sauron mun ekki hafa gleymt sverði Elendils.
25	Hjörinn sem var brotinn mun snúa aftur til Mínas Tíríðs.
26	Sá Maður sem veldur mætti þessa sverðs getur kallað til sín her sem er banvænni en nokkur á jarðríki.
27	Settu Rekkann til hliðar.
28	Vertu sá sem þú fæddist til að verða.
29	Farðu Dimmholtsveg.
30	Ég færi Mönnum von.
31	Ég á mér enga sjálfur.
32	Hví gerirðu þetta?
33	Stríðið er í Austri.
34	Þú getur ekki farið kvöldið fyrir orrustuna.
35	Þú getur ekki yfirgefið mennina.
36	Jóvin...
37	- Við þörfnumst þín hér.
38	Hví komstu?
39	Veistu það ekki?
40	Í mér elskar þú aðeins skuggann og ímyndina.
41	Ég get ekki veitt þér það sem þú sækist eftir.
42	Ég hef óskað þér sælu frá því ég leit þig fyrst augum.
43	Hvert þykist þú vera að fara?
44	Ekki núna.
45	Í þetta sinn verður þú eftir, Gimli.
46	Hefurðu ekki lært neitt um þrjósku Dverga?
47	Sættu þig við það.
48	Við förum með þér, drengur.
49	Hvað er að gerast?
50	Hvert er hann að fara?
51	Ég skil ekki.
52	Aragorn!
53	Hví fer hann rétt fyrir orrustu?
54	Hann fer því það er engin von.
55	Hann fer því hann er tilneyddur.
56	Of fáir hafa komið.
57	Við getum ekki sigrað heri Mordors.
58	Nei.
59	Það getum við ekki.
60	En við munum engu að síður mæta þeim í orrustu.
61	Ég hef gefið fyrirmæli.
62	Þjóðin á að lúta stjórn þinni í minn stað.
63	Taktu sæti mitt í Gullinþekju.
64	Megir þú verja Edóras lengi ef illa fer í orrustunni.
65	Hvaða öðrum skyldum viljið þér að ég gegni, herra minn?
66	Skyldum?
67	Nei.
68	Það vildi ég að þú brostir á ný en syrgðir ekki þá sem tíminn hefur vitjað.
69	Þú munt lifa það að sjá þá daga koma á ný.
70	Og ekki meiri örvæntingu.
71	Hvers konar her hefst við á svona stað?
72	Fordæmdur her.
73	Endur fyrir löngu sóru Fjallbúar síðasta konungi Gondor eið um að koma honum til hjálpar og berjast.
74	En þegar kallið kom, þegar þörf Gondors var brýn, flúðu þeir og hurfu inn í myrkur fjallanna.
75	Ísildur lagði þá bölvun á þá um að þeir fengju aldrei hvíld fyrr en eiðurinn væri uppfylltur.
76	Hver mun kalla úr húmskugga gráum hinn gleymda lýð?
77	Arftaki Þess er eiða Þeir sóru.
78	Úr norðri hann kemur og nauður hann rekur...
79	Að brjótast um dyrnar að Dauðsmannsslóð.
80	Blóðið storknar í æðum mér.
81	Leiðin er lokuð.
82	Hinir Dauðu gerðu hana.
83	Og hinir Dauðu halda henni.
84	Leiðin er lokuð.
85	Breki!
86	Ég óttast ekki dauða.
87	Þetta er fáheyrt.
88	Fer Álfur í iður jarðar, þangað sem Dvergur hættir sér ei?
89	Skömmin myndi fylgja mér um aldur og ævi.
90	Við verðum að ríða hratt og léttbúnir.
91	Leiðin framundan er löng og maður og dýr verða að komast á leiðarenda með nægan þrótt til að berjast.
92	Litlir Hobbitar eiga ekki heima í stríði, meistari Káradúkur.
93	Allir vinir mínir hafa haldið til orrustu.
94	Mér þætti skömm að því að vera skilinn eftir.
95	Það er þriggja daga sprettur til Mínas Tíríðs og enginn riddara minna getur íþyngt sér með þér.
96	Ég vil berjast.
97	Ég hef ekki fleiri orð um þetta.
98	Ríddu með mér.
99	Frú mín góð?
100	Fylkið liði!
101	Haldið af stað!
102	Ríðið!
103	Ríðið til Gondors!
