0	Vettvangsnám: Heildræn þjónusta
1	Forkrafa fyrir Vettvangsnám - heildræn þjónusta er Vettvangsnám - einstaklingsmiðuð þjónusta og námskeiðið Einstaklingsmiðuð þjónusta: starfshættir þroskaþjálfa. Um er að ræða heildstætt nám fræða og vettvangs.
2	Nemendur taka virkan þátt í störfum þroskaþjálfa og fá faglega leiðsögn og fræðslu.
3	Viðfangsefni og vinnulag:
4	Á þessu misseri fá nemar tækifæri til sérhæfingar innan starfssviðs þroskaþjálfa.
5	Um er að ræða störf með börnum og unglingum annars vegar og hins vegar störf með fullorðnum og öldruðum. 
6	Í því samhengi fá þeir tækifæri til þess að dýpka starfstengda þekkingu á völdu sviði og tengja við fræðilegan og faglegan grunn sem og eigin starfskenningu.
7	Jafnframt er lögð áhersla á virka þátttöku í öllum þeim þáttum er felast í starfi þroskaþjálfa bæði heildrænt og á völdu sviði sérhæfingar. 
8	Sérstök áhersla er á tengingu við nýjar mannréttindaáherslur í þjónustu. 
9	Þannig er réttindagæsluhlutverk, ráðgjafar - og leiðsagnarhlutverk þroskaþjálfa skoðað. 
10	Leiðbeinendur leggja fram leiðsagnaráætlun fyrir nemann sem unnin er í samstarfi við umsjónarmann námskeiðins og aðra leiðbeinendur á sama sérsviði.
11	Nemar fá tækifæri til að hafa áhrif á áherslur leiðsagnaráætlunarinnar í samræmi við áhuga, reynslu og þarfir. 
12	Nemendur vinna starfstengd verkefni í samræmi við kröfur vettvangsnámsins. Um er að ræða verkefni er lúta að ábyrgð og skyldum þroskaþjálfa, faglegum forsendum og beinni þátttöku í starfi á völdu sviði.
13	Jafnframt því  fá nemendur aðstöðu til að vinna að  starfstengdum verkefnum í námskeiðinu Fagmennska og mannréttindi: Nýjar áherslur í þjónustu. 
14	Vettvangsnámið skipast á tvær 4 vikna lotur.
15	Vikuhlé er á milli lotna og sækja nemendur þá námslotu í skólann.
16	Um er að ræða viðveru á vettvangi er miðast við 6 kennslustundir á dag.
17	Verkefnavinna er þar fyrir utan. 
18	Markmið:
19	Í lok námskeiðs skulu nemendur hafa:
20	Þekking
21	Dýpkað þekkingu á fræðilegum og faglegum forsendum á völdu sviði.
22	Öðlast dýpri skilning og sýn á ábyrgð, starfsskyldur, helstu áskoranir og starfsþróun þroskaþjálfa í starfi nú og í náinni framtíð með sérstakri áherslu á valið svið.
23	Öðlast dýpri sýn og skilning á fræðilegar og faglegar forsendur eigin starfskenningar og starfsþróunar.
24	Leikni
25	Geti beitt kerfisbundnum og gagnrýnum aðferðum við greiningu viðfangsefna.
26	Geti rökstutt ákvarðanir á fræðilegum og faglegum grunni.
27	Geti lagt sjálfstætt mat á þær ákvarðanir og aðferðir sem nýttar eru.
28	Greini hvenær þörf er á frekari upplýsingum og hafi færni til að finna þær, meta áreiðanleika þeirra og nýta á viðeigandi hátt.
29	Hafi tileinkað sér virðingu og auðmýkt gagnvart  eigin fagmennsku og þýðingu sannreyndrar þekkingar.
30	Hæfni
31	Sýni fram á hæfni til að tengja traustar fræðilegar og hugmyndafræðilegar forsendur við viðfangsefni vettvangsnámsins.
32	Sýni fram á hæfni til virkrar og ábyrgrar þátttöku í  þeim þáttum er felast í starfi þroskaþjálfa á völdu sérsviði.
33	Sýni fram á hæfni við að styðja viðfangsefni og ákvarðanir í starfi fræðilegum og faglegum rökum í ræðu og riti.
34	Sýni fram á hæfni til að leiða umræður um álitamál og áskoranir í vettvangsnáminu.
35	Sýnir fram á hæfni til að taka leiðsögn og handleiðslu og nýta til aukins árangurs í vettvangsnáminu.
36	Sýni fram á hæfni til árangursríkra samskipta og leiðtoga hugsunar.
37	Sýni fram á hæfni til fræðilegrar og starfstengdrar ígrundunar og til starfsþróunar.
