Skýrslur
Þú getur notað skýrslu til að:
- senda skrásett gögn til eftirlitsaðila;
- veita upplýsingar til hlutaðeigenda (starfsmanna, öryggisfulltrúa, atvinnurekenda, vinnuverndarsérfræðinga, o.s.frv.);
- fylgjast með og leggja mat á hvort gripið hafi verið til nauðsynlegra aðgerða;
- skrásetja endurskoðun á mati við breyttar kringumstæður (nýjar vélar/starfsmenn, eða í samræmi við niðurstöður rannsókna á slysum, o.s.frv.).
Þú getur vistað skýrsluna á tölvuna þína og prentað hana út. Þú getur einnig breytt henni eða bætt við frekari upplýsingum. Hafðu í huga að allar breytingar á skýrslu, sem þú hefur hlaðið niður, verða EKKI vistaðar í OiRA-verkfærinu.
Val á skýrslum
Mismunandi skýrslur eru í boði í mismunandi tilgangi. Skýrslur í boði í viðkomandi verkfæri fara eftir ákvörðunum OiRA landsskrifstofunnar/hugbúnaðarhönnuðarins.
Heildarskýrsla
Snið: Word / Office Open XML (.docx). Þú getur breytt henni eftir að þú hefur hlaðið henni niður.
Inniheldur: allar upplýsingar og athugasemdir sem þú hefur skráð í áhættumatsferlinu.
Notaðu hana til að: veita eftirlitsaðilum upplýsingar um áhættumatið (t.d. vinnueftirlitinu).
Aðgerðaráætlun
Snið: Excel / Office Open XML (.xlsx). Þú getur breytt henni eftir að þú hefur hlaðið henni niður
Inniheldur: upplýsingar um allar þær ráðstafanir sem þú hefur valið að hrinda í framkvæmd.
Notaðu hana til að:
- fylgja með virkum hætti á eftir framkvæmd þeirra ráðstafana sem þú hefur valið;
- stjórna vandamálum/áhættu á vinnustaðnum þínum (tiltekin verkefni, sérfræðiþekking, ábyrgðarsvið, tímafrestir).
Yfirlit yfir áhættu
Snið: Portable Document Format (.pdf). Þú getur ekki breytt því eftir að þú hefur hlaðið því niður.
Inniheldur: yfirlit yfir greinda áhættu
Notaðu það til að:
- fá yfirlit yfir stöðu áhættu á vinnustaðnum þínum;
- veita hlutaðeigendum upplýsingar;
- fylgjast með hvort tekið sé á áhættu/ráðstöfunum með viðeigandi hætti.
Yfirlit yfir ráðstafanir
Snið: Portable Document Format (.pdf). Þú getur ekki breytt því eftir að þú hefur hlaðið því niður.
Inniheldur: yfirlit yfir ráðstafanir sem á að hrinda í framkvæmd.
Notaðu það til að:
- fá yfirlit yfir stöðu ráðstafana sem þú hefur ákveðið að hrinda í framkvæmd;
- veita hlutaðeigendum upplýsingar;
- fylgjast með hvort tekið sé á áhættu/ráðstöfunum með viðeigandi hætti.